Velkominn á heimsíðu lærakeyra.is
Jóhann Hilmar Haraldsson, ökukennari:
Ég er staðsettur á Höfn í Hornafirði en starfa talsvert með nemendum að Djúpavogi til austurs og að Kirkjubæjarklaustri til vesturs. Hafðu samband og við finnum lausnir.
Ég kenni á sjálfskiptan og beinskiptan bíl og býð upp á:
Kennslu í B-réttindum:
Eru almenn ökuréttindi og nemandi getur byrjað námið á 16 ára afmælinu.
Akstursmat / Fullnaðarskírteini:
Er hluti af B-réttinda ferlinu. Til þess að ökumaður fái fullnaðarskírteini, eftir að hafa fengið bráðabirgðaskírteini, þarf viðkomandi að hafa verið punktalaus í 12 mánuði. Þá getur nemandi haft samband við ökukennara, klárað akstursmat og því næst sótt um fullnaðarskírteini.
Kennslu í BE-réttindum / Kerrupróf:
Þeir sem tóku almenn ökuréttindi fyrir 15.ágúst 1997, fengu B og BE réttindi í sitt ökuskírteini. Þeir sem tóku almenn ökuréttindi eftir 15.ágúst 1997, fengu einungis B réttindi. Árið 1997 var 1980 árgangurinn að fá bílpróf og er það sturluð staðreynd að sumir í þeim árgangi fengu BE réttindi og aðrir ekki. Til þess að öðlast BE réttindi, þarft þú að sækja fjóra verklega tíma hjá ökukennara, taka munnlegt og verklegt próf.
Ráðgjöf eða fræðslu í umferðarmálum:
Þetta gæti hentað öllum skólastigum, fyrirtækjum og sveitarfélögum. Fræðslan og eða ráðgjöfin gæti verið í formi fyrirlestra, verklegrar fræðslu og æfinga. Einnig úttekt svæða er varðar umferðamerkingar og - öryggi, ásamt því að koma með tillögur að úrbótum.


